FORMATRAINING

Einkaþjálfun fyrir konur

Veldu þjálfun sem hentar þér

Veldu þjálfun sem hentar þér

World Class

Veldu pakka

Æfing í Forma Start
Fjarþjálfun

Forma Start

16.990 kr. / mánuður

Tilbúið æfingaprógramm fyrir konur sem vilja byggja upp vöðva og styrkja líkamann með styrktarþjálfun.

Forma Start er tilbúið æfingaprógramm fyrir konur sem vilja byggja upp vöðva og styrkja líkamann með styrktarþjálfun. Prógrammið hentar vel þeim sem vilja byrja að mæta í ræktina en vantar plan og æfingar.

  • Aðgangur að appi
  • Æfingaprógramm – 5 æfingadagar
  • Myndbönd og leiðbeiningar
  • Yfirlit yfir æfingar í dagatali
  • Aðgangur að þjálfara í skilaboðum
Velja
Æfing í Forma Custom
Fjarþjálfun

Forma Custom

29.990 kr. / mánuður

Sérsniðið æfingaprógramm sem hentar þér og þínum markmiðum.

Forma Custom er æfingaprógramm sem er sett upp sérstaklega fyrir þig og þín markmið. Öllum æfingum fylgja myndbönd og leiðbeiningar og þú færð vikuleg check-in, eftirfylgni og aðhald.

  • Aðgangur að appi
  • Sérsniðin styrktarþjálfun út frá þínum markmiðum
  • Myndbönd og leiðbeiningar með öllum æfingum
  • Vikuleg check-in
  • Eftirfylgni og aðhald
  • Aðgangur að þjálfara í skilaboðum
Velja
Staðþjálfun í World Class
Staðþjálfun

World Class

Veldu stöð sem hentar þér

Laugar · Smáralind · Breiðholt · Ögurhvarf

frá 10.000 kr. / tíma

Staðþjálfun þar sem þjálfari mætir með þér í ræktarsalinn í World Class og leiðir þig í gegnum æfinguna. Hver tími er 60 mín.

Staðþjálfun þar sem þjálfari mætir með þér í ræktarsalinn í World Class og leiðir þig í gegnum æfinguna. Hver tími er 60 mín.

Mikilvægt er að vera vel nærð fyrir tímann, mæta í hreinum æfingafatnaði og vera snyrtileg til fara.

Ath. Þú þarft að vera með kort í World Class til að bóka staðþjálfun.

Velja
Þjálfari

Fanný Helga Þórarinsdóttir

Löggiltur einkaþjálfari
Fanný Helga Þórarinsdóttir, þjálfari

Vilt þú komast í form með aðstoð einkaþjálfara?

Ég er ungur og ferskur einkaþjálfari með mikla ástríðu fyrir styrktarþjálfun. Ég brenn fyrir því að hjálpa konum að verða sterkari, byggja upp sjálfstraust og öðlast jákvæðara samband við eigin líkama.

Ég vil að konur upplifi styrktarþjálfun sem eitthvað sem þær gera fyrir sjálfar sig, til að verða sterkari, líða betur og sjá hversu miklu þær geta áorkað. Það snýst ekki bara um það sem þú sérð í speglinum, heldur líka um það hvernig þér líður og hvað þú getur.

Hvort sem þú æfir með mér í World Class eða í gegnum appið færðu skýrt plan, peppandi stuðning og þjálfara sem hefur trú á þér. Ég set upp æfingar sem passa þínum markmiðum, kenni þér rétta tækni og fylgi þér eftir.

2fjarþjálfunar­prógrömm
4World Class stöðvar

Verðskrá

Fjarþjálfun

Forma Start

Tilbúið prógramm

SamningurÁ mánuðiHeildarverð
1 mánuður16.990 kr.16.990 kr.
2 mánuðir13.990 kr.27.980 kr.
3 mánuðir12.990 kr.38.970 kr.
6 mánuðir11.990 kr.71.940 kr.
Fjarþjálfun

Forma Custom

Sérsniðið prógramm

SamningurÁ mánuðiHeildarverð
1 mánuður29.990 kr.29.990 kr.
2 mánuðir22.990 kr.45.980 kr.
3 mánuðir21.990 kr.65.970 kr.
6 mánuðir19.990 kr.119.940 kr.
Staðþjálfun

Stakir tímar

Eingreiðsla

Skipti1 einstaklingur2 einstaklingarÁ mann
1 skipti10.000 kr.14.000 kr.7.000 kr./mann7.000 kr.
2 skipti18.000 kr.25.000 kr.12.500 kr./mann12.500 kr.
3 skipti25.000 kr.35.000 kr.17.500 kr./mann17.500 kr.
4 skipti32.000 kr.45.000 kr.22.500 kr./mann22.500 kr.
Staðþjálfun

Fastir tímar á mánuði

Verð fyrir allan mánuðinn

Skipti1 einstaklingur2 einstaklingarÁ mann
1 sinni í viku4x í mánuði29.000 kr.40.000 kr.20.000 kr./mann20.000 kr.
2 sinnum í viku8x í mánuði55.000 kr.75.000 kr.37.500 kr./mann37.500 kr.
3 sinnum í viku12x í mánuði78.000 kr.110.000 kr.55.000 kr./mann55.000 kr.
Staðþjálfun

Fastir tímar á mánuði

Verð fyrir allan mánuðinn · 3 mánaða binding

Skipti1 einstaklingur2 einstaklingarÁ mann
1 sinni í viku4x í mánuði27.000 kr.35.000 kr.17.500 kr./mann17.500 kr.
2 sinnum í viku8x í mánuði51.000 kr.70.000 kr.35.000 kr./mann35.000 kr.
3 sinnum í viku12x í mánuði72.000 kr.100.000 kr.50.000 kr./mann50.000 kr.
Veldu pakka

Tilbúið æfingaprógramm sem hentar konum sem vilja byggja upp vöðva og styrkja sig. 5 mismunandi æfingar sem þú getur raðað eftir þínum þörfum.

Verð
12.990 kr.
á 4 vikna fresti
Fanný Helga Þórarinsdóttir, þjálfari
Þjálfari Fanný Helga Þórarinsdóttir Löggiltur einkaþjálfari

Umsagnir

Eva, viðskiptavinur Forma Training
Eva★★★★★
Forma Custom

Ég er svo ánægð með allt, að skrá mig í þjálfun hjá Forma var líklega besta ákvörðun sem ég hef tekið í langan tíma fyrir sjálfan mig, hef oft reynt þetta sjálf en „gefst“ alltaf hálfpartinn upp og næ engum langtíma árangri eða rútínu.

Ég fann strax að Fanný náði til mín, skipulagið og allt utanumhald var svo gott og svo er hún svo peppandi og maður finnur fyrir því að hún er virkilega að gefa sér tíma í að hjálpa manni, svo gott að leita til hennar og biðja um aðstoð ef maður er óviss með hvað sem er og það sem ég elska mest að mér finnst ég geta verið hreinskilin við hana og sagt henni og hún „hjálpar manni upp ef maður dettur“.

Æfingarnar eru líka svo skemmtilegar og ég finn hvað það er LOKSINS gaman að mæta á æfingar og gaman að sjá árangur og líða betur. Svo þakklát fyrir þetta ferli og framhaldið.

Nína Margrét, viðskiptavinur Forma Training
Nína Margrét★★★★★
Forma Custom

Ég mæli klárlega með Forma training! Mig langaði að leggja meiri áherslu á styrktarþjálfun og lyftingar og fannst ótrúlega gott að fá æfingaprógramm sem var sérsniðið að mér og mínum markmiðum.

Í byrjun svaraði ég spurningalista þar sem ég fór yfir markmiðin mín, hvað mig langaði að leggja áherslu á og hvað ég vildi fá út úr þjálfuninni. Út frá því setti Fanný þjálfari saman prógramm sem hentaði mér og mínum þörfum og ég fékk einnig vikuleg check-ins sem hjálpuðu mér mjög mikið að ýta mér á æfingu þá daga sem ég var kannski ekki alveg jafn peppuð fyrir því sem ég held að við lendum öll í við og við.

Mér fannst líka svo mikill kostur að hafa þjálfara til að leiðbeina mér, peppa mig áfram og hjálpa mér að vera markvissari á æfingum. Það er svo miklu auðveldara að halda sér við efnið þegar maður er með skýrt plan og veit hvað maður er að vinna að. Ég myndi klárlega mæla með þessari þjálfun fyrir allar konur sem vilja koma sér betur af stað í lyftingum eða taka æfingarnar sínar á næsta stig!

Hafa samband

Ertu með spurningar um þjálfunina eða vantar þig aðstoð við að velja prógramm? Hafðu samband! Allar spurningar eru velkomnar.